1. Forsíða
  2. Samræmd könnunarpróf færð yfir á varaprófdaga

Samræmd könnunarpróf færð yfir á varaprófdaga

Í samræmdu könnunarprófi í íslensku í 9. bekk sem lagt var fyrir í morgun komu upp tæknileg vandamál í prófakerfi. Vandinn lýsti sér í því að margir nemendur áttu erfitt með að komast inn í prófin eða duttu út úr kerfinu áður en þeir höfðu lokið próftöku. Samkvæmt fyrstu greiningu hafa um 3.500 nemendur af um 4.200 lokið prófinu en ljóst er að hluti nemenda tók prófið við ófullnægjandi aðstæður.

Menntamálastofnun ber ábyrgð á framkvæmd samræmdra könnunarprófa í grunnskólum og harmar þau vandamál sem komu upp við fyrirlögn þeirra. Eru nemendur og starfsfólk skóla beðið afsökunar á þeim óþægindum sem þetta hefur valdið. Stofnunin er nú að greina stöðuna með þjónustuaðila prófakerfisins og vinna að viðeigandi úrlausn. Þar sem ekki hefur fengist fullnægjandi lausn á þeim vanda sem upp kom í morgun var nauðsynlegt að endurskoða fyrirlögn prófanna.

Að höfðu samráði við mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur verið ákveðið að fresta samræmdum könnunarprófum í stærðfræði og ensku í þessari viku. Skólum er gefinn kostur á að leggja öll þrjú samræmdu könnunarprófin fyrir á tveggja vikna tímabili frá og með næsta mánudegi. Þannig hafi skólar val um hvaða próf þeir leggja fyrir og hvenær á tímabilinu 15.-26. mars. Allir nemendur innan sama skóla verða að taka sama próf á sama degi. Við þessar krefjandi aðstæður hefur ekki verið svigrúm til að eiga samráð og samtal við foreldra, nemendur og skólasamfélagið en stefnt er að því næstu daga.

Með þessu fyrirkomulagi telur Menntamálastofnun að unnt verði að leggja samræmd könnunarpróf fyrir með viðunandi hætti  og skapa skólum svigrúm til að ljúka fyrirlögn þeirra án þess að mikil röskun verði á skólastarfi. 

Skólar eru beðnir um að senda tilkynningu til Menntamálastofnunar á netfangið [email protected] um hvenær á ofangreindu tímabili skólinn hyggst leggja próf fyrir og í hvaða námsgrein. Gefnir verða út nýir prófkóðar fyrir nemendur í íslensku.

skrifað 08. MAR. 2021.