1. Forsíða
  2. Samstarfsyfirlýsing undirrituð á Akureyri

Samstarfsyfirlýsing undirrituð á Akureyri

Menntamálastofnun og hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri hafa skrifað undir samstarfsyfirlýsingu. Það voru Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar og Elín Díanna Gunnarsdóttir, forseti hug- og félagsvísindasviðs HA sem skrifuðu undir yfirlýsinguna á Akureyri, föstudaginn 21. febrúar.

Markmið samstarfsins er að efla rannsóknir á menntun með því að nýta sameiginlega sérfræðiþekkingu og gögn. Þannig verði sérfræðingum Háskólans á Akureyri gert kleift að nýta sér í rannsóknarskyni gögn sem Menntamálastofnun aflar t.d. með prófum og þátttöku í alþjóðlegum könnunum. Jafnframt verði fræðileg túlkun og greining gagna styrkt með því að miðla sérfræðiþekkingu milli Háskólans og Menntamálastofnunar.

Skilgreind verða sameiginlega verkefni um fræðilega ráðgjöf, öflun, greiningu og úrvinnslu gagna á afmörkuðum sviðum. Á grundvelli slíkra skilgreindra verkefna geta aðilar samhæft gagnaöflun að uppfylltum öllum skilyrðum laga og reglna sem um slíka vinnslu gilda m.a. um persónuvernd og reglum um vísindarannsóknir.  Sérstakur samningur verður gerður um hvert verkefni.

Forstöðumenn stofnanna hafa yfirumsjón með samstarfsverkefnum en verkefnisstjórnir, sem skipaðar eru um hvert verkefni, sjá um framkvæmd þeirra.

 

skrifað 21. FEB. 2020.