1. Forsíða
  2. Sexan stuttmyndakeppni 2024 er hafin

Sexan stuttmyndakeppni 2024 er hafin

Sexan stuttmyndakeppni er haldin fyrir öll í 7. bekk grunnskólum landsins í janúar 2024.

Fyrirkomulag Sexunnar er einfalt. Þátttakendur fá fræðslu í skólum og/eða félagsmiðstöðvum og fá tækifæri til að búa til og skila inn tilbúinni stuttmynd, hámark 3 mínútur að lengd. Viðfangsefni keppninnar eru fjórar birtingarmyndir stafræns ofbeldis:

  • samþykki
  • nektarmynd
  • tæling
  • slagsmál ungmenna

Auk þess er opinn flokkur fyrir allt það sem þér finnst mikilvægt að allir krakkar í 7. bekk viti um.

Þú getur sent inn mynd á 112.is/sexan eða beðið kennarann þinn eða starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar að gera það. Innsendingargáttin er opin frá 8. janúar til og með 28. janúar 2024.

Þátttakendur hafa frjálsar hendur með handritagerð, framkvæmd og eftirvinnslu. Hver skóli má senda að hámarki 3 myndir í keppnina en dómnefnd skipuð fulltrúum ungmennaráðs, RÚV, MMS og kvikmyndagerðar velur svo þrjár bestu stuttmyndirnar sem verða sýndar á vef UngRÚV í viku sex, kynfræðsluvikunni 5. til 9. febrúar 2024. Formaður dómnefndar 2024 er kvikmyndaleikstjórinn Baldvin Z.

Vinningsmyndirnar verða sendar í alla skóla á landinu og notaðar í fræðsluskyni fyrir öll í 7. bekk.

Við hvetjum sérstaklega ungmenni af erlendum uppruna, hinsegin ungmenni og fötluð ungmenni að taka þátt!

Nánari upplýsingar um stuttmyndakeppnina á vef Neyðarlínunnar

Sexan er forvarnar- og fræðsluverkefni breiðrar fylkingar samstarfsaðila sem öll láta sig lýðheilsu ungmenna varða: Neyðarlínan, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga, Jafnréttisstofa, Barna- og fjölskyldustofa, Fjölmiðlanefnd, Samskiptafulltrúi íþrótta- og æskulýðsstarfs, Ríkislögreglustjóri, Menntamálastofnun og RÚV.

Fréttatilkynning - Sexan stuttmyndakeppni

 

skrifað 08. JAN. 2024.