1. Forsíða
  2. Skali 3B - kennarabók

Skali 3B - kennarabók

Nú má nálgast kennarabók með Skala 3B sem flettibók.

Skali býður upp á innhaldsríka og lifandi stærðfræðikennslu fyrir unglingastig. Nemendur öðlast bæði skilning og færni með því að vera virkir og leitandi þegar þeir vinna við stærðfræði.

Nemendur og kennarar nota Skala til að lesa stærðfræði, vinna verkefni, rökræða lausnarleiðir og fást við stærðfræðilegar áskoranir á rannsakandi og skapandi hátt. Skali vekur áhuga nemenda með því að tengja stærðfræði við daglegt líf og bjóða upp á fjölbreytta kennslu. 

Í Skala er lögð áhersla á:

Hið faglega innihald, rökrétta uppbyggingu námsefnisins og framvindu námsins

Skýr og nákvæm markmið 

Hagnýt dæmi og verkefni

Aðlögun námsefnisins að þörfum nemenda í sameiginlegu námssamfélagi

Nákvæmar leiðbeiningar og stuðning við kennara sem nýtist áður en kennsla hefst, meðan á henni stendur og eftir að henni lýkur. 

skrifað 09. FEB. 2017.