1. Forsíða
  2. Skemmtilegasta verðlaunahátíð landsins

Skemmtilegasta verðlaunahátíð landsins

SÖGUR – verðlaunahátíð barnanna fer fram í Eldborg sunnudaginn 22. apríl kl. 19.30. Á þessum stórviðburði í anda Kids’ Choice Awards verðlauna íslensk börn allt það sem þeim finnst standa upp úr í menningarlífinu. Þetta er verðlaunahátíð eins og börn vilja sjá hana, fyndin og fjörug – og langar ræður eru stranglega bannaðar. 

Verðlaun verða veitt fyrir tónlist, leiklist, sjónvarp og síðast en ekki síst barnabókmenntir. Krakkar á aldrinum 6-12 ára um allt land hafa kosið sitt uppáhald og þau ráða! Á hátíðinni verður einnig afhentur Sögusteinninn, heiðursverðlaun IBBY, auk þess sem ungir rithöfundar, leikskáld og kvikmyndagerðarmenn hljóta verðlaun.

SÖGUR – verðlaunahátíð barnanna verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Að henni standa SÖGUR – samtök um barnamenningu í samstarfi við KrakkaRÚV, Barnamenningarhátíð, Borgarbókasafnið, Borgarleikhúsið, IBBY á Íslandi, SÍUNG, Menntamálastofnun, Miðstöð skólaþróunar við HA, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur.

Frítt er inn á hátíðina og hvetjum við alla til að tryggja sér miða inni á harpa.is.

Hátíðin er hluti af dagskrá aldarafmælis fullveldis Íslands.

skrifað 20. APR. 2018.