1. Forsíða
  2. Skilaboð móttekin er nú komin á rafrænt form

Skilaboð móttekin er nú komin á rafrænt form

Bókin Skilaboð móttekin er nú komin á rafrænt form. Í henni er fjallað um tungumál, myndmál og notkun á táknum í fjölmiðlum og auglýsingum.

Þetta er óvenjuleg kennslubók í íslensku um málefni sem varðar daglegt líf allra Íslendinga því fjölmiðlar eru áhrifarík fyrirbæri  sem eru fyrirferðarmikil í nútímanum og snúast fyrst og fremst um að miðla upplýsingum. En ekki er allt sem sýnist.

  • Hvernig lítur sannleikurinn út? 
  • Er hægt að afbaka sannleikann með ólíkum búningum? 
  • Hversu mikil áhrif hafa auglýsingar á okkur.
  • Hversu frjáls erum við sem neytendur?
skrifað 18. JAN. 2021.