1. Forsíða
  2. Söguboltinn rúllar til verðlaunahafa

Söguboltinn rúllar til verðlaunahafa

Ungir lesendur eiga von á verðlaunum sínum fyrir þátttöku í Söguboltaleiknum, lestrarátaki sem skipulagt var af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Menntamálastofnun í góðu samstarfi við KSÍ og íslenska karlalandsliðið í fótbolta. Dregnir hafa verið út 23 heppnir þátttakendur í leiknum en alls skilaði 821 lesandi inn þátttökuseðli að þessu sinni. 

Að launum fá krakkarnir gjafir frá íslenska karlalandsliðinu og bókagjöf frá Forlaginu og berast pakkarnir með póstinum á allra næstu dögum. Meðal þess sem finna má í pökkunum eru fyrirliðaband, frábærir fótboltaskór, treyjur og hanskar. 

Söguboltaleikurinn tengdi saman tvær ástríður landsmanna, bókmenntir og fótbolta en þátttakendur þurftu að leysa ýmsar einfaldar lestrarþrautir til þess taka þátt. Markmiðið með leiknum var að fá fleiri til þess að sinna lestrinum heima í sumarfríinu. Þættina um Söguboltann, sem framleiddir voru í aðdraganda heimsmeistarakeppninnar í fótbolta í sumar, má finna á vef KrakkaRÚV. 

 

skrifað 10. SEP. 2018.