1. Forsíða
  2. Stærðfræðispæjarar 2 | Nýtt námsefni

Stærðfræðispæjarar 2 | Nýtt námsefni

Út er komin önnur bókin um stærðfræðispæjarana þar sem Vala, Róbert, Blær og Mosi leiða nemendur áfram í að rannsaka stærðfræðiverkefni með aðstoð kennarans. Nemendur slást þannig í lið með stærðfræðispæjurunum og læra enn meira um allskonar stærðfræði. 

Stærðfræðispæjarar 2 er ítarefni í stærðfræði fyrir nemendur á yngsta stigi en getur einnig nýst fyrir aðra nemendur í fjölbreyttu skólasamfélagi. Bókin er framhald af Stærðfræðispæjarar 1 en getur staðið ein og sér.

Bókin er byggð upp á 5 köflum sem sóttir eru í hæfni á ólíkum sviðum stærðfræðinnar samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla; tölur, rúmfræði, reikningur, mælingar og tölfræði og hnitakerfi. Bókinni er einnig ætlað að mæta áherslum aðalnámskrár um þjálfun almennra viðmiða um stærðfræðilega hæfni auk lykilhæfni.

Í bókinni eru kynnt til sögunnar tákn fyrir verkefnin Spæjarabók og af borði á gólf. Hugmyndir að útfærslum á þeim verkefnum eru í kennsluleiðbeiningum en þær spila stórt hlutverk við notkun á námsefninu.

skrifað 25. áGú. 2020.