1. Forsíða
  2. Starfsfólk óskast við PISA rannsóknina

Starfsfólk óskast við PISA rannsóknina

Menntamálastofnun leitar að starfsfólki til að vinna við PISA (Programme for International Student Assessment), alþjóðlega menntarannsókn á vegum OECD.

Vinnan fer fram á tímabilinu mars – júní 2022 og felur í sér fyrirlögn PISA í 10. bekkjum grunnskóla og kóðun á svörum. Um verktakavinnu er að ræða. Verkefnin krefjast öryggis í framkomu, reynslu af starfi með unglingum, góðrar tölvu- og íslenskukunnáttu og skipulags- og samstarfshæfileika. Æskilegt er að umsækjendur hafi háskólamenntun. Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 28. janúar og umsóknir skulu sendar á [email protected]. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Svanhildi Steinarsdóttur á sama netfang eða í síma 514-7500.

skrifað 20. JAN. 2022.