1. Forsíða
  2. Sumarlæsisdagatal 2018

Sumarlæsisdagatal 2018

Læsisdagatal getur verið skemmtileg leið til að hvetja börn til lestrar í sumarfríinu. Sérfræðingar Menntamálastofnunar hafa unnið eitt slíkt foreldrum til stuðnings.

Læsisdagatalið inniheldur fjölmargar spennandi leiðir að lestri, flestar fyrir börn sem eru farin að lesa. Ef barnið þitt hefur ekki náð tökum á lestri getur þú samt sem áður nýtt hugmyndirnar en þú gætir þurft að aðlaga þær að getu barnsins.

Við hvetjum þig til að heimsækja bókasafnið með barninu og stuðla þannig að því að barnið geti valið bækur út frá áhugasviði. Bókasafnsskírteini fyrir 18 ára og yngri eru gjaldfrjáls.

Læsisdagatalið er annars vegar útfyllt með hugmyndum og hins vegar óútfyllt þannig að hægt er að fylla inn í það út frá áhuga og aðstæðum.

Hægt er að prenta læsisdagatalið út eða vista í tölvu og fylla síðan dagana með skemmtilegum og hvetjandi hugmyndum að lestri.

Læsisdagatalið getur nýst á fjölbreyttan máta s.s. inni á heimilum, í leikskólum, á ferðalagi og í frístundastarfi með börnum.

Mikið væri gaman ef þið gætuð deilt myndum af upplifun og útfærslu ykkar af læsisdagatalinu á Instagram-reikningi Menntamálastofnunar #menntamálastofnun

Þá minnum við á verkefnið Lesum meira en skemmtilegur hópur unglinga á aldrinum 13-15 ára var fenginn til samstarfs í undirbúningi verkefnisins. Afrakstur samstarfsins eru myndbönd með vinsælum fyrirmyndum sem deila með okkur reynslu sinni og upplifun af mikilvægi lesturs í leik og starfi.

Gangi ykkur vel og hafið gaman saman að lestri í sumar!

skrifað 11. MAí. 2018.