1. Forsíða
  2. Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2022

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2022

Athygli er vakin á því að opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2022.

Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi skólastarf, kennslu, þróunarverkefni, auk sérstakra hvatningarverðlauna til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr.

Sérstök athygli er vakin á því að í ár bætist við nýr verðlaunaflokkur: Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun, ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Þessi nýi flokkur er til orðinn að frumkvæði Samtaka iðnaðarins sem nú hafa gengið til liðs við þá aðila sem að verðlaununum standa.

Tilnefningar þurfa að berast fyrir 1. júní, en viðurkenningarráð velur þrjár til fimm tilnefningar í hverjum flokki til kynningar á alþjóðadegi kennara 5. október. Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í nóvember og mun RUV sýna frá afhendingunni.

Nánari upplýsingar um verðlaunin og tilnefningarnar er að finna á þessari slóð: https://skolathroun.is/menntaverdlaun/

 

skrifað 07. MAR. 2022.