Samkvæmt 4. gr. laga um Menntamálastofnun nr. 91/2015 og reglugerð um fagráð stofnunarinnar nr. 530/2016 skal forstjóri setja á fót fagráð við stofnunina. Hvert þeirra skal skipað sérfróðum fulltrúum og skulu starfa á eftirtöldum þremur starfssviðum:
- náms- og gæðamat,
- gerð og miðlun námsgagna,
- upplýsingagjöf og þjónusta.
Við skipan í fagráð skal hafa til viðmiðunar að viðkomandi aðili hafi faglega þekkingu og reynslu á starfssviði fagráðsins. Leitast skal við að fagráð endurspegli sem best það starf sem tengist viðkomandi sviði og að þar sitji aðilar sem búa yfir mikilli hæfni, þekkingu og reynslu af starfi á vettvangi skóla, viðurkenndra fræðsluaðila, fræða- og rannsóknasamfélags eða atvinnulífs. Einnig skal taka mið af því að hvert fagráð sé skipað einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn.
Við skipan í fagráð skal gæta þess að hlutfall kynjanna sé sem jafnast, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Lýsing á starfssviðum
Náms- og gæðamat: Menntamálastofnun hefur eftirlit og metur árangur af skólastarfi. Í þessu felst að sjá um samræmd könnunarpróf í grunnskólum og stöðupróf í leik- og grunnskólum. Stofnunin sér einnig um framkvæmd Aðgangsprófa í Háskóla Íslands og til greina kemur að hún sinni námsmati á framhaldsskólastigi. Menntamálastofnun sér einnig um eftirlit og mat á leik-, grunn- og framhaldsskólum. Loks sinnir stofnunin eftirliti og mælingum á stöðu skólakerfisins út frá alþjóðlegum viðmiðum.
Gerð og miðlun námsgagna: Menntamálastofnun sér öllum grunnskólanemendum fyrir námsgögnum sem eru í samræmi við aðalnámskrá. Í þessu verkefni felast umtalsverðar skyldur bæði hvað varðar gerð námsefnis og þjónustu við skóla. Einnig er í lögum um Menntamálastofnun gert ráð fyrir að stofnunin geti haft hlutverk varðandi námsgögn á öðrum skólastigum.
Upplýsingagjöf og þjónusta: Menntamálastofnun annast söfnun, greiningu og birtingu upplýsinga um menntamál og veitir á grundvelli þeirra stjórnvöldum, fagaðilum og almenningi upplýsingar og leiðbeiningar. Á sviði þjónustu annast stofnunin viðurkenningu einkaskóla á framhaldsskólastigi og framhaldsfræðsluaðila, innritun nemenda í framhaldsskóla, undirbúning að staðfestingu námsbrauta- og áfangalýsinga framhaldsskóla. Einnig hefur stofnunin umsjón með matsnefndum og útgáfu leyfisbréfa fyrir kennara, náms- og starfsráðgjafa og bókasafns- og upplýsingafræðinga og sér um þjónustu fyrir starfsgreinaráð og fagráð gegn einelti.
Hæfnikröfur
Leitað er eftir aðilum sem búa yfir þekkingu og reynslu á viðkomandi fagsviði með starfi á vettvangi skóla/fræðsluaðila, fræða- og rannsóknasamfélags eða atvinnulífs. Við val á fulltrúum verður tekið mið af því að hvert fagráð sé skipað einstaklingum með fjölbreyttan bakgrunn. Þannig verður miðað við að í hverju fagráði sé einn fulltrúi sem hefur beina reynslu af skólastarfi í stjórnun eða kennslu, fulltrúi með þekkingu á hagsmunum foreldra og nemenda, fulltrúi með sérmenntun og reynslu af rannsóknum á viðkomandi fagsviði og loks fulltrúi sem hefur reynslu af störfum í atvinnulífi hjá fyrirtækjum eða opinberum stofnunum sem tengjast viðkomandi starfssviði.
Miðað er við að í hverju fagráði sitji allt að 5 fulltrúar en einn starfsmaður Menntamálastofnunar starfar með hverju ráði. Greitt verður fyrir undirbúning og fundarsetu samkvæmt þóknunarreglum fjármálaráðuneytisins.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og stuttri greinargerð um sýn viðkomandi á það starfssvið sem hann sækir um sendist til Menntamálastofnunar fyrir lok dags 10. október 2016 á netfangið [email protected].
Vinsamlega athugið að umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 20. október 2016.
Nánari upplýsingar veita viðkomandi sviðstjórar:
Náms- og gæðamat: Gylfi Jón Gylfason
Gerð og miðlun námsgagna: Þröstur Bragason
Upplýsingagjöf og þjónusta: Helga Óskarsdóttir
S. 514-7500