1. Forsíða
  2. Tölvunarfræðinemar íslenska forritunarumhverfi fyrir grunnskólanema

Tölvunarfræðinemar íslenska forritunarumhverfi fyrir grunnskólanema

Nú geta krakkar forritað á micro:bit smátölvuna sína á íslensku.

Þýðing ritilsins var afrakstur samstarfs Háskóla Íslands og Kóðans en frá áramótum hafa nemendur í Verkefnahóp Kóðans á tölvunarfræðibraut við Háskóla Íslands staðið í ströngu við þýðingar á hinum ýmsu forritunarhugtökum auk annarra verkefna.

Kóðinn 1.0 er samstarfsverkefni KrakkaRÚV, Samtaka iðnaðarins, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Menntamálastofnunar. 

Markmið verkefnisins er að efla forritunarkunnáttu íslenskra barna. Auka vitund þeirra um mikilvægi forritunar í daglegum störfum, efla rökhugsun og stuðla að auknum áhuga á tækni og iðngreinum í samræmi við áherslur í aðalnámskrá grunnskóla. Verkefnið felst í dreifingu á micro-bit smátölvunni en hana geta allir krakkar í 6. bekk fengið gefins og tekist á við hinar ýmsu forritunaráskoranir sem finna má á vefsíðu Kóðans.

Sérstakar þakkir fá Bjarki Freyr Rúnarsson, Sindri Pétur Guðmundsson og Stella Rut Guðmundsdóttir sem stóðu að þýðingunni.

Skoða má forritunarumhverfið á íslensku á vefsíðu Kóðans www.kodinn.is undir Búa til kóða.

          

          

skrifað 02. MAí. 2018.