1. Forsíða
  2. Ungmennaráð Menntamálastofnunar

Ungmennaráð Menntamálastofnunar

Stofnað hefur verið ungmennaráð Menntamálastofnunar sem í eru unglingar á aldrinum 14-18 ára, alls staðar að af landinu. Munu þeir vera stofnuninni innan innan handar með ráðgjöf um málefni og verkefni er varða börn og ungmenni.

Ungmennin verða meðal annars ráðgefandi um framtíðarsýn í þeim málum sem varða þeirra aldursflokk, eins og t.d. útgáfu námsefnis, námsmat, innritun og fleira. Einnig verða þau starfsfólki Menntamálastofnunar innan handar í einstökum verkefnum, ef tími og aðstæður ráðgjafa leyfa. Þau sitja fundi, málþing eða ráðstefnur á vegum Menntamálastofnunar, ef þurfa þykir, og halda erindi á ráðstefnum, skrifa greinar í blöð og funda með ráðamönnum, svo nokkuð sé nefnt.

Alls eru 22 ungmenni í ráðinu, 12 stúlkur og 10 strákar, og voru þau tilnefnd af samstarfsaðilum Menntamálastofnunar í kjölfar samráðsfundar í vor með fulltrúum úr ýmsum starfandi ungmennaráðum. Í framhaldi af þeim fundi óskaði Menntamálastofnun eftir tilnefningum frá þessum sömu aðilum (Barnaheillum, SAFT, Samfés, Unicef, umboðsmanni barna, UMFÍ og Sambandi íslenskra sveitarfélaga) og hefur ráðið nú verið sett á fót.

Umsjónaraðili ungmennaráðsins hjá Menntamálastofnun er Erla Ósk Guðjónsdóttir, s. 514-7500, [email protected].

 

Fulltrúar í ungmennaráði Menntamálastofnunar eru:

1.         Anna Mínerva Kristinsdóttir

2.         Ástþór Jón Tryggvason

3.         Berglín Sólbrá Bergsdóttir

4.         Bjarki Steinar Viðarsson

5.         Brynja Rún Guðmundsdóttir

6.         Eyrún Magnúsdóttir

7.         Guðmunda Bergsdóttir

8.         Guðný Rós Jónsdóttir

9.         Gunnar Ágústsson

10.       Haukur Orri Kristjánsson

11.       Hulda Margrét Sveinsdóttir

12.       Inga Huld Ármann

13.       Ingibjörg Ragnheiður Linnet

14.       Jón Ragnar Magnússon

15.       Júlíus Viggó Ólafsson

16.       Jökull Ingi Þorvaldsson

17.       Kristján Helgason

18.       Marta Valdís Reykdal

19.       Sara Rós Hulda Róbertsdóttir

20.       Sigrún Birna Steinarsdóttir

21.       Sigurður Ingvi Gunnþórsson

22.       Sindri Smárason

skrifað 28. NóV. 2016.