1. Forsíða
  2. Upplýsingar vegna innritunar í framhaldsskóla

Upplýsingar vegna innritunar í framhaldsskóla

Innritun í framhaldsskóla fyrir haustið 2020 er nú lokið. Hægt er að fylgjast með stöðu umsókna á umsóknarvef Menntamálastofnunar.

Stefnt að því að allir nemendur hafi fengið svar í lok þessarar viku. 

Hér eru upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn á umsóknarvefinn: 

Umsækjendur 17 ára og eldri nota Íslykil eða rafræn skilríki til að skrá sig inn. Íslykil er hægt að fá afhentan hjá Þjóðskrá gegn framvísun persónuskilríkja. Einnig er hægt að sækja um Íslykil rafrænt á www.island.is. Hægt er að velja um að fá hann sendan á lögheimili, sem tekur 2-3 virka daga eða í netbanka og skilar hann sér þangað innan fárra mínútna. Rafræn persónuskilríki er hægt að sækja um hjá viðskiptabanka.

Umsækjendur 16 ára og yngri og eiga ekki veflykil sem afhentur var í grunnskóla geta einnig sótt um Íslykil eða fengið forráðamann sinn til að sækja veflykil Menntagáttar fyrir sig. Forráðamaðurinn fer þá inn í umsókn og notar til þess Íslykil eða rafræn skilríki. Þegar komið er inn í umsóknina er valinn flipinn "Veflyklar" vinstra megin á síðunni. Þegar hann er valinn kemur listi yfir börn forráðamanns á aldrinum 14-18 ára og veflyklar þeirra. Forráðamaður skrifar veflykilinn niður, skráir sig út úr kerfinu með því að velja "Útskráning" í valmyndinni til vinstri. Umsækjandinn sjálfur getur síðan farið inn í umsóknarformið og skráð inn kennitöluna sína og veflykil Menntagáttar.

Ef koma upp vandamál varðandi innskráningu þarf að hafa samband við Menntamálastofnun í síma 514-7500, senda netpóst á [email protected] eða senda einkaskilaboð til ráðgjafa innritunar á Facebook.

 

skrifað 22. JúN. 2020.