Í Útbroti eru fjölbreyttir og upplýsandi textar sem fjalla meðal annars um unga aðgerðarsinna, sögu heimiliskatta, rómantík, nýyrði, listaverkastuld, tónlistarhátíðir, bílpróf og peninga.
Bókinni er ætlað að þjálfa lesskilning nemenda á unglingastigi en textunum fylgja einnig verkefni sem reyna á athygli, ályktunarhæfni og skilning.
Bókin er einnig aðgengileg sem rafbók.