1. Forsíða
  2. Útgáfudagur 30. apríl | Opið hús í tilefni dagsins

Útgáfudagur 30. apríl | Opið hús í tilefni dagsins

Í dag, 30.apríl, er útgáfudagur Menntamálastofnunar að vori en þá kynnum við nýjustu útgáfu námsefnis.

Að þessu sinni koma út fjölmargir titlar í íslensku á yngsta, mið- og unglingastigi. Í samfélagsgreinum kemur út fjögurra bóka flokkur sem fjallar um málefni flóttafólks, stríð í heiminum, fátækt og hungur, fordóma og þröngsýni. Bókaflokknum fylgja kennsluleiðbeiningar og verkefni á vef. Nýtt og stærra safn hugtaka í stærðfræði með fjölda skýringamynda lítur einnig dagsins ljós í dag.

Hér má sjá yfirlit yfir ný útkomið námsefni

Opið hús verður í Víkurhvarfi frá kl. 15:00 til 17:00 þar sem gestum gefst tækifæri til að glugga í nýútgefið námsefni, spjalla við ritstjóra, höfunda og myndskreyta.

Starfsfólk Menntamálastofnunar vonast til að sjá sem flesta.

Í framhaldi af útgáfudegi að vori verður boðið til námsefnisýningar og örkynninga (Náms-örk) fimmtudaginn 9.maí. Hér má sjá dagskrá

 

skrifað 30. APR. 2019.