1. Forsíða
  2. Úttekt á gerð og notkun læsisstefnu

Úttekt á gerð og notkun læsisstefnu

Það er ánægjuefni að um 93% grunnskólabarna á Íslandi eru í skólum sem hafa sett sér læsisstefnu eins og kemur fram í niðurstöðum úttektar Menntamálastofnunar á stöðu læsisstefnu hjá sveitarfélögum. Þá hafa 87% leikskóla sett sér læsisstefnu. Í úttektinni má sjá að talsverður munur er á gerð læsisstefnu á milli stórra og lítilla sveitarfélaga en 6% lítilla sveitarfélaga og 54% stórra sveitarfélaga hafa sett sér læsisstefnu. Einungis rúmlega þriðjungur allra sveitarfélaga hefur sett sér formlega læsisstefnu.

Allir fræðslustjórar sem svöruðu segja að niðurstöður læsismælinga séu nýttar á markvissan hátt en aftur á móti segja 84% læsisstefnuna innihalda aðgerðaáætlun um hvernig bregðast eigi við vísbendingum um læsisvanda nemenda.

Sjá nánari niðurstöður í skýrslu Menntamálastofnunar um úttektina.

Markmið úttektarinnar var að athuga hvort skólar og sveitarfélög hafi sett sér læsisstefnu í samræmi við Þjóðarsáttmála um læsi og til að afla upplýsinga svo Menntamálastofnun geti veitt sveitarfélögum og skólum betri þjónustu vegna framkvæmdar sáttmálans. Auk úttektarinnar hefur verið unnið að eflingu ráðgjafar um læsi og gerður læsisstefnurammi, sem er einskonar leiðarljós við gerð og endurskoðun læsisstefnu.

Með læsisstefnu marka skólarnir leiðina að bættu læsi og hún er því mjög mikilvægur liður í að bæta árangur nemenda í læsi. Læsisteymi Menntamálastofnunar mun nú sem fyrr annast ráðgjöf og stuðning við sveitarfélög og skóla varðandi læsisstefnugerð og aðra þætti skólastarfs sem miða að því að efla læsi íslenskra barna.

skrifað 15. MAR. 2019.