1. Forsíða
  2. Vafrað um Læsisvefinn

Vafrað um Læsisvefinn

Nýr Læsisvefur Menntamálastofnunar inniheldur verkfæri og bjargir sem nýtast kennurum við að vinna úr niðurstöðum Lesferils og til að gera lestrarkennslu fjölbreytta og skemmtilega á öllum stigum grunnskólans.

Þegar vafrað er um vefinn má finna áhugaverð verkefni og aðferðir sem nota má í lestrarkennslu með heilum bekk, í litlum hópum eða til einstaklingsþjálfunar.

Við hvetjum alla til að kynna sér efni vefsins og prófa nokkrar aðferðir í lestrarkennslunni!

Fjarfundur með kynningu á vefnum verður haldinn miðvikudaginn 26. febrúar kl. 15:15. Áhugasamir sendi tilkynningu um þátttöku á netfangið [email protected].

skrifað 24. FEB. 2020.