1. Forsíða
  2. Vinátta | Forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti

Vinátta | Forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti

Námsefnið Vinátta (Fri for mobberi) fyrir 1.-4. bekk grunnskóla er nú komið í dreifingu hjá Menntamálastofnun og stendur öllum grunnskólum landsins til boða.

Námsefnið kemur í blárri tösku og inniheldur bangsann Blæ, 21 stk. stór samræðuspjöld, verkefnahugmyndir og leiki. Auk þess eru kennsluleiðbeiningar fyrir kennara og veggspjöld.

Innifalið í námsefninu er eins dags námskeið sem panta þarf í gegnum Barnaheill. Á námskeiðinu er fjallað um þær rannsóknir og hugmyndafræði sem Vinátta byggir á og hvernig innleiða má efnið í skólastarf.

Skólar geta pantað tvær töskur að hámarki á meðan birgðir endast. 

skrifað 13. DES. 2023.