1. Forsíða
  2. Vinningshafar í Vísubotni 2019

Vinningshafar í Vísubotni 2019

Úrslit í vísnasamkeppni grunnskólanema, Vísubotn 2019, liggja nú fyrir. Menntamálastofnun, í samstarfi við KrakkaRúv, efnir til keppninnar ár hvert í tilefni af degi íslenskrar tungu. Í keppninni spreyttu nemendur sig á því að botna fyrriparta eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson.

Að þessu sinni bárust samtals 535 vísubotnar frá 21 skóla víðs vegar að á landinu og greinilegt að áhugi fyrir vísnagerð er fyrir hendi í mörgum grunnskólum. Frá yngsta stigi bárust samtals 256 vísubotnar, 182 frá miðstigi og 97 botnar frá unglingastigi. Einum nemanda á hverju stigi voru veitt bókaverðlaun og viðurkenningarskjal fyrir besta vísubotninn. Á mið- og unglingastigi var gerð krafa um ljóðstafi og rím en á yngsta stigi var fyrst og fremst hugað að rími og innihaldi.

Í fyrsta sinn í níu ára sögu keppninnar koma tveir vinningshafar frá sama skóla, Grunnskólanum í Fjallabyggð, og greinilegt að þar á bæ hefur verið lögð mikil áhersla á kveðskaparlistina. Vinningshafi á miðstigi kemur úr Hofsstaðaskóla í Garðabæ sem leggur einnig mikla rækt við vísnagerð og átti skólinn m.a. vinningshafa á yngsta stigi fyrir tveimur árum.

Vinningshafarnir í ár eru eftirfarandi:

Á yngsta stigi var Aron Óli Ödduson hlutskarpastur en hann er nemandi í 4. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar. Vísubotn hans er hér feitletraður:

Heim ég fer með létta lund,
leik mér eftir skóla.
Fæ mér drykk og fer í sund,
fer svo út að hjóla.

 

Á miðstigi hlaut Andrea Hvannberg, nemandi í 6. bekk Hofsstaðaskóla í Garðabæ, verðlaun fyrir besta botninn í sínum aldursflokki:

Kuldinn bítur, komum út,
klæðum okkur betur.
Á kuldaskóna hnýti ég hnút
og hnerrann kveð í vetur.

 

Á unglingastigi fékk Helena Reykjalín Jónsdóttir, nemandi í 9. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar, verðlaun fyrir sinn vísubotn:

Manna verk er mengun öll,
margt sem þarf að laga.
Stöndum upp og stöðvum spjöll,
stefnum á betri daga.

Menntamálastofnun óskar vinningshöfum til hamingju með frábæran árangur og þakkar grunnskólanemum og kennurum fyrir þátttökuna. Það er von okkar að vísnasamkeppnin verði nemendum og kennurum hvatning til að halda kveðskaparlistinni á lofti.

Margir aðrir vel ortir vísubotnar bárust í keppnina og hér birtum við nokkra sem voru á meðal þeirra bestu:

Yngsta stig
Miðstig
Unglingastig

skrifað 24. JAN. 2020.