1. Forsíða
  2. Yes we can 6

Yes we can 6

Yes we can 6efnið er nú allt komið út fyrir utan kennsluleiðbeiningar sem eru væntanlegar. Efnið er hluti af flokki sem inniheldur heildstætt námsefni í ensku fyrir yngsta – og miðstig en alls verða bækurnar sex talsins.

Í námsefninu er lögð áhersla á að  auka hæfni nemenda til þess að nota tungumálið sem lifandi verkfæri í fjölbreyttum tilgangi og við ólíkar aðstæður. Efnistök eru úr hversdagslífi nemenda og áhersla er lögð á samfelldan texta sem höfðar til áhugasviðs þeirra ásamt fjölbreyttum verkefnum sem byggja á textanum. 

Efnið samanstendur af nemendabók, verkefnabók, rafbókum og vef sem inniheldur hljóð – og hlustunarefni, gagnvirkum æfingum og kennsluleiðbeiningum sem eru væntanlegar.

skrifað 23. áGú. 2022.