1. Forsíða
  2. Yes we can 6 | Nýtt námsefni

Yes we can 6 | Nýtt námsefni

Vefur með enskuefninu Yes we can 6 er kominn út. Hann er enn í smíðum en kennarar geta skoðað nemendabók og verkefnabók á rafrænu formi ásamt hlustunarefni og gagnvirkum æfingum. Yes we can 6 er önnur bókin í sex í bókaflokki sem inniheldur heildstætt námsefni í ensku fyrir yngsta – og miðstig en alls verða bækurnar sex talsins.

Í námsefninu er lögð áhersla á að  auka hæfni nemenda til þess að nota tungumálið sem lifandi verkfæri í fjölbreyttum tilgangi og við ólíkar aðstæður. Efnistök eru úr hversdagslífi nemenda og áhersla er lögð á samfelldan texta sem höfðar til áhugasviðs þeirra ásamt fjölbreyttum verkefnum sem byggja á textanum.

skrifað 02. JúN. 2022.