1. Forsíða
  2. Yes we can | Nýtt námsefni

Yes we can | Nýtt námsefni

Út eru komnar verkefnabækur með efninu Yes we can 2, 3 og 4. Bækurnar eru hluti af flokki  sem inniheldur heildstætt námsefni í ensku fyrir yngsta – og miðstig en alls eru bækurnar sex talsins.

Í námsefninu er lögð áhersla á að hvetja nemendur og kennara til að tala ensku allt frá upphafi enskunáms. Nemendur læra orð, setningamynstur og tækni til að skilja og nota tungumálið. Markvisst er lögð áhersla á að efla orðaforða nemenda til að byggja góðan grunn undir áframhaldandi nám í ensku.

Yes we can efnið samanstendur af verkefnabókum (einnig rafbókum), kennsluleiðbeiningum á vef, boxum með 102 flettispjöldum, veggspjöldum fyrir orðaforðaþjálfun og vefefni fyrir nemendur og kennara.

skrifað 12. JúN. 2023.