1. Forsíða
  2. Yfirlýsing frá þjónustuaðila prófakerfis

Yfirlýsing frá þjónustuaðila prófakerfis

Forráðamönnum Assessment Systems þykir afskaplega leitt að framkvæmd prófa skuli hafa raskast með þeim hætti sem raun er á. Við biðjum Menntamálastofnun og nemendur á Íslandi afsökunar á að hafa brugðist trúnaði þeirra og á þeim vandkvæðum sem þetta hefur valdið. Í prófum sem hófust samkvæmt áætlun 9. mars 2018 kom óvænt villa upp í gagnagrunni okkar í Evrópu. Tæknimenn okkar voru að störfum og tiltækir meðan á prófunum stóð en gátu því miður ekki komið lagfæringum við nægilega fljótt og margir nemendanna urðu því að hverfa frá prófi. Komið hefur í ljós að vandann má rekja til skjámyndar sem notuð er til auðkennisstaðfestingar og var tekin upp á þessu ári. Við vinnum nú að því að leysa úr þessum vandamálum í mjög nánu samstarfi við Menntamálastofnun. Við biðjum afsökunar alla þá nemendur og kennara sem urðu fyrir barðinu á þessum truflunum í prófakerfinu. Nýjum skrefum verður bætt við starfsferla okkar til þess að tryggja að þetta gerist ekki aftur.

Assessment Systems is extremely sorry for this unfortunate interruption in testing. We apologize to the Directorate of Education and the Icelandic students for the breach in confidence and surrounding issues this has caused. During scheduled testing on March 9th 2018 our EU database encountered an unexpected error. We had technicians live and on call during the testing process, but unfortunately we were unable to correct the problem fast enough to allow many students to continue the test. We have discovered the source of the problems was with an identity verification screen that was new for this year. We are working very closely with the Directorate of Education to correct these problems. We apologize to all the students and teachers who were impacted by this interruption in the exams. We are putting in additional steps in our processes to prevent any future occurrence.

Jessica Imholte, Director of Marketing

[email protected] 

 

skrifað 09. MAR. 2018.