1. Forsíða
  2. Handbók um velferð og öryggi barna í leikskólum

Handbók um velferð og öryggi barna í leikskólum

Handbók um velferð og öryggi barna í leikskólum

Handbókin er unnin í samvinnu mennta- og menningarmálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga með stoð í lögum um leikskóla nr. 90/2008 og reglugerð um starfsumhverfi leikskóla nr. 655/2009. Handbókina má nýta í heild sinni eða nýta þá þætti sem henta hverju sinni.

Notendur

Handbókin er ætluð sveitarstjórnum, rekstraraðilum, skólastjórnendum, kennurum og öðrum sem starfa í leikskólum til stuðnings við gerð öryggishandbókar, öryggisáætlana og viðbragðsáætlana fyrir leikskóla. Mikilvægt er að í öryggishandbók fyrir starfsfólk leikskóla sé tæpt á öllum þeim þáttum sem koma fram í handbók þessari.

Uppsetningu handbókarinnar er ætlað að auðvelda notendum að finna upplýsingar um hina mismunandi þætti sem taka á velferð og öryggi leikskólabarna. Markmiðið með handbókinni er að setja fram á aðgengilegan hátt upplýsingar um þá þætti sem huga þarf að í daglegum rekstri og starfi leikskóla.

Handbókinni er skipt í 10 meginkafla:

  • Lög, reglugerðir og námskrár sem gilda um leikskóla
  • Velferð barna, skólabragur, einelti og önnur óæskileg hegðun
  • Netöryggi
  • Forvarnir og fræðsla
  • Öryggi í námsumhverfinu
  • Öryggi í ferðum á vegum leikskóla
  • Eftirlit
  • Slys
  • Almannavarnir og eldvarnir
  • Viðaukar

Opna Handbók um öryggi barna á leikskólum