Handbókin er unnin í samvinnu mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Herdísar Storgaard og Þorláks Helga Þorlákssonar með stoð í lögum um leikskóla nr. 90/2008 og reglugerð um starfsumhverfi leikskóla nr. 655/2009.
Fyrir hvern?
Handbókin er ætluð sveitarstjórnum, rekstraraðilum, skólastjórnendum, kennurum og öðrum sem starfa í leikskólum til stuðnings við gerð öryggishandbókar, öryggisáætlana og viðbragðsáætlana fyrir leikskóla. Handbókina má nýta í heild sinni eða nýta þá þætti sem henta hverju sinni. Mikilvægt er að í öryggishandbók fyrir starfsfólk leikskóla sé tæpt á öllum þeim þáttum sem koma fram í handbók þessari.
Handbókinni er skipt í 10 meginkafla
Hverjum meginkafla er síðan skipt í undirkafla til að auðvelda leit að sértækum þáttum. Meginkaflar handbókarinnar eru:
- Lög, reglugerðir og námskrár sem gilda um leikskóla
- Velferð barna og ungmenna
- Netöryggi
- Slysavarnir og líkamlegt öryggi
- Öryggi í námsumhverfi
- Eftirlit
- Öryggi í ferðum á vegum grunnskóla
- Slys
- Almannavarnir og viðbrögð við eldvörnum og náttúruvá
- Áhugavert lesefni og viðaukar
Handbók um velferð og öryggi barna í leikskólum
Handbók um velferð og öryggi barna í grunnskólum