1. Forsíða
  2. Innritunartölfræði haust 2021

Innritunartölfræði haust 2021

Hér að neðan getur að líta helstu tölur varðandi innritun í framhaldsskóla á haustönn 2021. Greint hefur verið á milli helstu breyta sem skipta máli varðandi innritun, þ.e. fjölda umsókna í einstaka skóla og skipting vals (í fyrsta og annað val) og skipting milli mismunandi námsleiða (almennt bóknám, starfsnám og undirbúningsnám). Einnig hafa innritunartölur verið greindar eftir kynjum og skiptingu milli landshluta.

Að gefnu tilefni þá er rétt að taka það fram að skilgreiningin "Nýnemi" á við um þau sem eru að innritast beint úr grunnskóla.

Upplýsingarnar eru fengnar úr Innu þann 05.09 2021.

Umsóknum er gjarnan skipt niður eftir stöðu þeirra. Þær geta tekið þrennskonar stöðu; Samþykkt, hafnað eða önnur lok. Til annarra loka getur talist að viðkomandi hafi fengið samþykkta umsókn en ákveðið að þiggja ekki skólavist, að umsækjandi hafi hætt við umsókn, að umsóknin sé í bið, eða að umsóknin sé annað hvort ógild eða óstaðfest. Stöðuna hafnað fá umsóknir þeirra nemenda sem fá hvergi skólavist í framhaldsskólakerfinu.

Varðandi heildarniðurstöðu umsóknar nýnema geta lok orðið með þrennum hætti; Að nemendur hafi fengið inni í þeim skóla sem þau settu í fyrsta sæti, að þau hafi fengið inni í þeim skóla sem settur var í annað sæti eða að nemendur hafi þurft aðstoð MMS. Hið síðastnefnda þýðir að þegar hinu hefðbundna innritunarferli lauk hafi komið i ljós að viðkomandi hafi ekki verið boðin skólavist í þeim skólum sem nemandinn setti í fyrsta eða annað sæti. Þegar þannig er í pottinn búið gerir Menntamálastofnun viðkomandi nemenda tilboð um skólavist.

Hafa ber í huga að nokkrir nemendur eru skráðir á námsbrautir sem enn hafa ekki verið flokkaðar í námsleiðir. Einnig ber við að kyn nemenda sé ekki skráð. Þetta leiðir til þess að samtölum ber ekki fullkomlega saman í öllum tilvikum þar sem viðkomandi nemendur eru ekki alltaf hafðir með í útreikningum, s.s. þar sem birtar eru tölur yfir námsleiðir og kynjaskiptingu. Þar sem um lítinn hóp er að ræða hefur þetta hverfandi áhrif á niðurstöður.