Leyfisbréf kennara
Lög um menntun, hæfni og ráðningu, kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 95/2019 öðlast gildi 1. janúar 2020. Við gildistöku laga nr. 95/2019 falla úr gildi lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda nr. 87/2008.
Samkvæmt lögum nr. 95/2019 verður gefið út eitt leyfisbréf kennara en ekki aðgreint á milli skólastiga eins og fyrri lög kváðu á um. Áður útgefin leyfisbréf leik–, grunn– og framhaldsskólakennara uppfylla skilyrði fyrir leyfisbréfi með sérhæfingu á því skólastigi sem fyrri kennsluréttindi tóku til. Ekki verða gefin út ný leyfisbréf til þeirra sem hafa fengið leyfisbréf leik – grunn – og framhaldsskólakennara fyrir gildistöku laga nr. 95/2019. Kennarar með áður útgefin leyfisbréf hafa því kennsluréttindi á leik – grunn – og framhaldsskólastigi með sérhæfingu á því skólastigi sem fyrri kennsluréttindi tóku til.
Menntamálastofnun hefur umsjón með útgáfu leyfisbréfa. Sótt er um á heimasíðu Menntamálastofnunar og er umsóknarferlið rafrænt. Rafræn skilríki eru nauðsynleg við innskráningu og til undirritunar umsóknar. Menntamálastofnun hefur falið þeim háskólum sem mennta og útskrifa kennara útgáfu leyfisbréfa þeim til handa.
Rétt til þess að nota starfsheitið kennari hefur sá einn sem hefur leyfisbréf. Til að öðlast leyfisbréf kennara þarf umsækjandi að hafa lokið meistaraprófi eða öðru námi sem jafngildir meistaraprófi og ráðherra viðurkennir sem kennslu á leik - grunn eða framhaldsskólastigi. Auk þess þarf umsækjandi að búa yfir almennri hæfni, sbr. 4. gr., og hafa að lágmarki 60 staðlaðar námseiningar í uppeldis – og kennslufræði og sérhæfingu skv. 5. gr. laga nr. 95/2019.
Tengill á lög um menntun, hæfni og ráðningu, kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla nr. 95/2019.