Lög um Menntamálastofnun
Menntamálastofnun er stjórnsýslustofnun á sviði menntamála sem stuðla skal að auknum gæðum skólastarfs og framförum í þágu menntunar í samræmi við lög og stefnu stjórnvalda, bestu þekkingu og alþjóðleg viðmið. Menntamálastofnun skal sinna verkefnum á sviði menntamála samkvæmt lögum þessum og því sem ráðherra felur stofnuninni. Lögin tóku gildi 5. ágúst 2015 nema 1. og 4.–7. gr. sem tóku gildi 1. júlí 2015; birtust í Stjórnartíðindum 4. ágúst 2015.