Fjölnota vinnuhefti fyrir umferðarfræðslu á unglingastigi grunnskóla. Heftinu er ætlað að vekja unglinga til umhugsunar um umferð og umferðaröryggi. Fjallað er um umferðarmenningu, umferðarmerki, öryggisbúnað ökutækja, ábyrgð, akstursaðstæður og margt fleira. Fjölbreytt verkefni eru í heftinu sem gera ráð fyrir umræðum og margvíslegri úrvinnslu.