1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Dagur íslenskrar tungu – Verkefnasafn

Dagur íslenskrar tungu – Verkefnasafn

Opna vöru

Dagur íslenskrar tungu hefur verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, þann 16. nóvember, síðan árið 1996. Á vefnum Dagur íslenskrar tungu hefur nú verið safnað saman þeim verkefnum sem útbúin hafa verið og kynnt á vefsvæðinu Í dagsins önn í tilefni þessa dags síðustu ár. Allt eru þetta verkefni sem tilvalið er að vinna á degi íslenskrar tungu. Á vefnum má m.a. finna fróðleik um íslensk ljóðskáld ásamt verkefnum sem leggja áherslu á mikilvægi þess að vernda tungumálið okkar.