Bókin Daufir duga er einkum ætluð heyrnarlausum unglingum í þeim tilgangi að gefa þeim kost á námsefni um sögu og samfélag heyrnarlausra. Henni er ætlað að vekja umræðu meðal þeirra um stöðu heyrnarlausra á ýmsum tímum, meðal annars með það í huga að læra megi af fortíðinni til að leitast við að skapa betri framtíð. Bókinni er einnig ætlað að auka skilning heyrandi lesenda á málefnum heyrnarlausra og veita þeim innsýn í heim heyrnarlausra.