Draugasaga Dóra litla er skemmtileg saga í flokknum Auðlesnar sögubækur.
Hún er einkum ætluð nemendum á aldrinum 10 til 15 ára sem eiga erfitt með lestur eða geta ekki lesið langa texta. Bókin er skreytt lifandi teikningum. Hún er til á hljóðbók og er reiknað með að nemendur geti notað saman bók og hljóðbók.
Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra sá um þýðinguna yfir á íslenskt táknmál. Táknari er Elsa G. Björnsdóttir.