Vinnubók með bókinni Ég heiti Grímar sem er í flokknum Auðlesið efni fyrir mið- og unglingasitig.
Verkefnin henta vel þeim sem eru með annað móðurmál en íslensku eða þurfa að styrkja málvitund sína af öðrum ástæðum. Lögð er áhersla á að nemendur fái þjálfun í að tengja saman lestur sögubókar og verkefni í vinnubók og að nota báðar bækur samtímis. Í vinnubókinni er athygli nemenda beint að lesskiningi, orðaforða og málfræði eins og tölu orða, samsett orð, orðflokka o.fl.