Fingrafimi 2 er vefur sem kennir fingrasetningu. Á vefnum eru heimalyklarnir úr Fingrafimi rifjaðir upp ásamt æfingum í lyklunum -. og ?, t,m,ð,v,p,u,þ,y,ö,c, broddstafir og komma og textaæfingar. Í hverri æfingu eru þrjátíu verkefni.
Leiðbeiningar með öllum verkefnum eru lesnar upp. Á vefnum er hægt að prenta út skráningarblöð fyrir nemendur.
Verið er að vinna í lagfæringu, en eins og er virkar ekki linkur á Matsblað.
Á meðan má nálgast pdf af blaðinu hér:
https://mms.is/sites/mms.is/files/atoms/files/fingrafimi2_matsbl.pdf