1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Græni gaukurinn – Myndaspjöld

Græni gaukurinn – Myndaspjöld

  • Höfundur
  • Kristjana Pálsdóttir
  • Myndefni
  • Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir
  • Vörunúmer
  • 6153
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2008
  • Lengd
  • 21 spjald

Um er að ræða 21 myndaspjald í stærðinni 10x15 cm með samnefndri smábók eftir Gerði Kristnýju. Spjöldin eru hugsuð til að æfa nemendur markvisst í munnlegri – og skriflegri tjáningu. Myndirnar má nota á ýmsan hátt til að skoða og ræða um án sögubókarinnar, áður en bókin er lesin eða eftir að hún er lesin.

Aftan á spjöldunum eru spurningar og verkefni eftir Kristjönu Pálsdóttur sem miðast við að nemendur svari annað hvort munnlega eða skriflega. Myndaspjöldin bjóða upp á fjölbreytta notkun og nýtast allt í senn í hópum, paravinnu og í einstaklingskennslu.


Tengdar vörur