Kennsluleiðbeiningar með fræðslumyndunum Hjólum og njótum! og Hjólum meira og njótum! fyrir yngsta- og miðstig grunnskóla. Myndirnar eru leiknar. Þær fjalla báðar um börn að hjóla undir leiðsögn kennara.
- Í mynd fyrir yngsta stig, Hjólum og njótum!, er farið yfir mjög einföld atriði um hjólið; jafnvægi, bremsur, hjálm og eðlilegt ástand og umgengni við hjólið, auk þess sem farið er í leiki.
- Í myndinni sem ætluð er miðstigi, Hjólum meira og njótum!, er sjónum beint meira að tækni, fjallað um hjólaviðgerðir, samvinnu við aðra umferð, stöðu reiðhjólsins á götunni, tækni við að láta hjólið vinna fyrir hjólreiðamanninn, t.d. varðandi gíra og hæð á hnakk. Leikir fá einnig sinn sess í myndinni.