Æfingaspjöld – myndir af æfingum
Með spilinu fylgja stuttar kennsluleiðbeiningar og 15 æfingaspjöld þar sem hver æfing er útskýrð á einfaldan hátt.
Gott er að prenta út æfingaspjöldin og fara yfir hverja æfingu áður en spilið er spilað. Þannig er hægt að skoða hvort leikmenn þekki æfingarnar og einnig er gengið úr skugga um að æfingarnar séu rétt gerðar. Mælt er með því að hengja æfingaspjöldin upp á vegg í kennslustofu, sérstaklega hjá yngri nemendum, þá geta nemendur skoðað spjöldin séu þeir ekki vissir um hvernig æfingin er framkvæmd þegar spilið er spilað.
Einnig er tilvalið að nota æfingaspjöldin til að brjóta upp kennslustund eða daginn. Þá eru þau prentuð út og klippt niður. Gott er að prenta spjöldin eða líma á þykkan pappír þannig að æfingarnar sjáist ekki í gegnum spjöldin.