1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Hvað heldur þú? Um gagnrýna hugsun - Kennsluleiðbeiningar

Hvað heldur þú? Um gagnrýna hugsun - Kennsluleiðbeiningar

Opna vöru

Kennsluleiðbeiningar með námsefninu Hvað heldur þú? Um gagnrýna hugsun. Þessu námsefni ætlað að skapa vettvang fyrir nemendur og kennara til að ástunda gagnrýna hugsun. Námsefnið kynnir ákveðin tæki til sögunnar í þessum tilgangi en gagnrýnin hugsun sprettur samt ekki fram nema kennarinn hafi einbeittan vilja til að hleypa henni að. Gagnrýnin hugsun felst ekki bara í tæknilegum hugarþrautum eða rökleikni heldur líka í ákveðnu hugarfari.

Ætlast er til að nemendur séu virkir í þekkingarleitinni og leiti svara og lausna í gagnrýnu samfélagi sínu. Slík vinnubrögð efla læsi og lýðræðislega hugsun og vinnubrögð, skapa fjölmörg tækifæri til skapandi hugsunar og úrvinnslu, gera kröfu um jafnræði meðal nemenda og starfsmanna og stuðla að heilbrigði og velferð nemenda á víðtækan hátt.


Tengdar vörur