TAK – Kennsluleiðbeiningar
Tak er námsefni í dönsku fyrir unglingastig grunnskólans. Efnið samanstendur af nemendabók og tveimur verkefnabókum A og B. Hljóðbók, hlustunaræfingar, skapandi verkefni, rafrænar flettibækur og lausnir verkefna eru á vefsíðu Menntamálastofnunar. Í kennsluleiðbeiningunum er fjallað almennt um námsefnið og um þær blaðsíður sem höfundar telja mikilvægt að útskýra nánar.