Í þessari bók, sem er einkum ætluð nemendum í 2.–3. bekk, er fjallað um atferli dýra, svo sem leiki, uppeldi, pörun, félagshegðun, far og næringarnám
Mörg dæmi eru tekin um fjölbreytta hegðun ólíkra dýra og mennirnir sjálfir eru þar á meðal. Kennsluefnið Komdu og skoðaðu hvað dýrin gera samanstendur af nemendabók og fjölbreyttu námsefni á vef ásamt kennsluleiðbeiningum. Við gerð efnisins var tekið mið af áherslum í námskrá í náttúrufræði og samfélagsgreinum.
ISBN 978-9979-0-1917-6