1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Kompás – Vefútgáfa

Kompás – Vefútgáfa

Opna vöru
  • Höfundur
  • Bender,Gomes, Keen, Lemineur, Oliveira, Ondrácková, Surian og Suslova
  • Upplestur
  • Yfirlestur: Erla Kristjánsdóttir, Guðrún D. Guðmundsdóttir og Hulda Sólrún Guðmundsdóttir
  • Myndefni
  • Pancho
  • Þýðing
  • Helga Jónsdóttir og Þórgunnur Skúladóttir
  • Vörunúmer
  • 9995
  • Skólastig
  • Miðstig
  • Unglingastig
  • Framhaldsskóli
  • Útgáfuár
  • 2009

Vefútgáfa af Kompás sem er handbók um mannréttindafræðslu og -menntun, ætluð æskulýðsleiðtogum, kennurum og öðrum sem vinna með ungu fólki sem fagaðilar eða áhugafólk.

Handbókin hefur að geyma raunhæfar hugmyndir og hagnýt verkefni sem ætluð er að virkja og vekja jákvæða vitund ungs fólks um mannréttindi og fá það til að vinna í þágu mannréttinda á sinn eigin hátt, í sínu samfélagi.

Kompás spannar vítt svið mannréttinda og efnistökin taka mið af áherslu á jafnrétti og mannlega reisn þar sem litið er til mannauðsins sem býr í ungu fólki.

Handbókin var þróuð af þverfaglegu og þvermenningarlegu teymi fagfólks. Hún er m.a. byggð á hugmyndum um reynslunám þar sem áhersla er á nemendur, umhverfi þeirra og vangaveltur.

Nemendur eru sjálfir útgangspunktarnir í náminu. Handbókin Kompás var samin innan ramma áætlunar æskulýðs og íþróttadeildar Evrópuráðsins um mannréttindi sem hleypt var af stokkunum árið 2000 í tilefni af 50 ára afmæli mannréttindasáttmála Evrópu. Með áætluninni er stefnt að því að efla þátt manntéttinda í æskulýðsstarfi og að mannréttindafræðsla verði liður í almennri menntun.

Í Kompás er að finna ólikar leiðir og nálganir fyrir hvern þann sem hefur áhuga á mannréttindum, lýðræði og borgaravitund.

Bókin er gefin út í samvinnu Menntamálastofnunar og Mennta- og menningarmálaráðuneytisins með leyfi Evrópuráðsins.