Vefur í íslenskri, enskri útgáfu (Play with english) og danskri útgáfu (Leg med dansk). Hann er til ætlaður málörvunar í íslensku, með nemendum með hægan málþroska og ekki síður nemendum sem eru með annað móðurmál en íslensku. Vefurinn nýtist einnig byrjendum í íslensku á miðstigi. Markmið vefjarins er fyrst og fremst að kenna nemendum algeng orð, ritun þeirra, lestur og framburð. Þemun sem tekin eru fyrir á vefnum eru áþekk þeim sem finna má í byrjendaefni í ensku og málörvunarefninu Orðasjóði og því er auðvelt að nota vefinn samhliða því námsefni.