1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Lestrarlandið – Lestrarbók – Rafbók

Lestrarlandið – Lestrarbók – Rafbók

Opna vöru
  • Höfundur
  • Arnheiður Borg og Sigrún Löve
  • Myndefni
  • Linda D. Ólafsdóttir
  • Vörunúmer
  • 40590
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2013
  • Lengd
  • 80 bls.

Lestrarkennsluefni fyrir byrjendur. Við gerð Lestrarlandsins var lögð áhersla á að námsefnið næði til allra þátta lestrarnámsins: hljóðavitundar, umskráningar, lesfimi, orðaforða, lesskilnings og ritunar. Jafnframt var lögð áhersla á að koma mætti til móts við mismunandi aðferðir og áherslur í lestrarkennslunni.

Námsefnið skiptist í eftirfarandi gögn:

  • Lestrarbók – innlögn. Á hverri opnu er kenndur einn bókstafur en við hlið hans er mynd af orði sem tengist stafnum.Í Lestrarlandinu eru tveir textar á opnu auk stakra orða.
  • Sögubók – Sjálfstæðar sögur út frá íslenska stafrófinu.
  • Hljóðbók – Sögurnar úr sögubókinni.
  • Myndir úr lestrarbók sem nálgast má á vef.

Ef rafbókinni er hlaðið niður þá birtist hún sem venjulegt pdf-skjal.