Lífið í sveitinni er fræðslumynd um líf sauðfjárbænda. Myndin er tekin á sauðfjárbúinu Sléttu við Reyðarfjörð og sýnir fjölbreytt störf bænda árið um kring. Fjallað er m.a. um fengitíma, sauðburð, rúning, heyannir og smalamennsku.
Höfundur myndarinnar er Þuríður Lillý Sigurðardóttir sem býr á bænum Sléttu.