1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Listin að lesa og skrifa 10a – Ramí­, Tímó og Tara

Listin að lesa og skrifa 10a – Ramí­, Tímó og Tara

  • Höfundur
  • Arnheiður Borg og Sigrún Löve
  • Myndefni
  • Freydís Kristjánsdóttir
  • Vörunúmer
  • 6059
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2005
  • Lengd
  • 8 bls.

Í bókinni Ramí, Tímó og Tara eru bókstafirnir í, ó, s, á, l, a, i, r, ú, m, u, v, e, n, o, æ, f, j, h, é, t, g, ð og ö æfðir ásamt orðmyndunum segir og pabbi

Bókin er hluti af lestrarkennsluefninu Listin að lesa og skrifa og nr. 10a í röð tuttugu og fjögurra lítilla lestrarbóka. Efnið skiptist að öðru leyti í fjórar vinnubækur, litlu lestrarbækurnar, örbækur, lesspil, kennsluleiðbeiningar, verkefni á vef o.fl.
Listin að lesa og skrifa er fyrir byrjendur í lestri og byggist fyrst og fremst á hljóðaaðferð. Lögð er áhersla á hæga stígandi, myndræna framsetningu, skipuleg vinnubrögð og endurtekningu. Allur texti er án samhljóðasambanda með greinilegu letri og góðu línubili.


Tengdar vörur