1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Listin að lesa og skrifa 14a - Alex og Rex (rafbók)

Listin að lesa og skrifa 14a - Alex og Rex (rafbók)

Opna vöru
  • Höfundur
  • Arnheiður Borg og Sigrún Löve.
  • Myndefni
  • Bergrún Íris Sævarsdóttir
  • Vörunúmer
  • 40184
  • Skólastig
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2018
  • Lengd
  • 8

Í bókinni Alex og Rex eru bókstafirnir ei, ey, p og x sérstaklega æfðir. Efnið er á þyngdarstigi 1 og er hluti af lestrarkennsluefninu Listin að lesa og skrifa. Bókin er nr. 14a í röð 42 lítilla lestrarbóka. Efnið skiptist í fjórar vinnubækur, litlar lestrarbækur, örbækur, lestrarspil, kennsluleiðbeiningar og verkefni á vef.

Lestrarkennsluefnið Listin að lesa og skrifa er fyrir byrjendur í lestri og byggist fyrst og fremst á hljóðaaðferð. Lögð er áhersla á hæga stígandi, myndræna framsetningu, skipuleg vinnubrögð og endurtekningu. Textinn er að mestu án samhljóðasambanda með greinilegu letri og góðu línubili.


Tengdar vörur