1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Listin að lesa og skrifa – Fía ofur-mús

Listin að lesa og skrifa – Fía ofur-mús

  • Höfundur
  • Arnheiður Borg og Sigrún Löve
  • Myndefni
  • Freydís Kristjánsdóttir
  • Vörunúmer
  • 6101
  • Skólastig
  • Leikskóli
  • Yngsta stig
  • Útgáfuár
  • 2007
  • Lengd
  • 8 bls.

Í bókinni eru bókstafirnir í, ó, s, á, l, a, i, r, ú, m, u, v, e, o, n, æ, f, j, h og é æfðir ásamt orðmyndunum sagði, ekki, og ég og að.

Fía ofur-mús er fimmta bókin í flokki örbóka en flokkurinn er hluti af lestrarkennsluefninu Listin að lesa og skrifa. Setningar og línur eru stuttar og letur skýrt.

Lestrarkennsluefnið Listin að lesa og skrifa er ætlað byrjendum í lestri og byggist fyrst og fremst á hljóðaaðferð. Lögð er áhersla á hæga stígandi, myndræna framsetningu, skipuleg vinnubrögð og endurtekningu. Allur texti er án samhljóðasambanda með greinilegu letri og góðu línubili. Efnið skiptist í fjórar vinnubækur, 24 lestrarbækur, örbækur, lesspil, kennsluleiðbeiningar, verkefni á vef o.fl.

Örbækurnar eru léttustu bækurnar í flokknum Listin að lesa og skrifa og ætlaðar þeim börnum sem þurfa mjög mikla endurtekningu og texta með stuttum orðum á meðan þau eru að ná tökum á lestrarnáminu.


Tengdar vörur