Um er að ræða 12 fimm mínútna langa sjónvarpsþætti sem sýndir voru í Ríkissjónvarpinu 2007. Einn listamaður kemur fram í hverjum þætti og segir frá sér og verkum sínum eða því sem hann vill miðla. Kynjaskipting er jöfn og verk listamannanna spanna næstum allt listasviðið. Fræðslumyndir Menntamálastofnunar eru aðeins til niðurhlaðs fyrir grunnskóla. Nauðsynlegt er að ip – tölur skóla séu skráðar hjá Menntamálastofnun.